|
Tangófestival, TANGO on ICEland 31. ágúst - 3. sept. 2006
>>Kennarar<<
>Pablo Inza & Moira
Castillano<

Pablo
Inza er frá Buenos Aires. Hann stundaði nám í sviðslistum og nútímadansi
í tveimur af virtustu listaskólum Argentínu. Pablo sneri sér alfarið
að tango árið 1991 og er talinn meðal mikilvægu dansara og kennara í
nútímatango. Hann hefur einnig starfað mikið fyrir leikhús og
samið dans fyrir leikhúsuppfærslur. Pablo kemur nú í annað sinn til
Íslands.
Moira Castillano er fjölhæfur dansarari með
glæsilegan feril. Hún hefur margra ára reynslu sem dansari.
Kennsluaðferðir og nálgun hennar að tango eiga rætur í hreinleika
hreyfinga, næmni fyrir dansfélaga og eðlilegri túlkun
hreyfinga í tango.
>Cecilia Gonzalés
og Donanto Juarez<
Cecilia
Gonzalez
er frá Buenos Aires. Hún er þegar orðin vinsæl á Íslandi og hefur
þrisvar áður verið gestur tangóhátíðar í Reykjavík. Hún hefur langa
reynslu af tango og verið dansfélagi margra allra bestu karldansara,
s.s. Fabian Salas og Chicho. Hún hefur einstaklega fallegan og
kvenlegan dansstíl, er mjög fjölhæfur dansari og gefandi og góður
kennari.
www.tangomotion.com
Cecilia
og Donato Juarez sýna á CITA festival í Buenos Aires, í mars 2006.
>Hany Hadaya & Bryndís
Halldórsdóttir<
Hany
og Bryndís hafa dansað og kennt og sýnt saman tango síðan 1996.
Hany er listdansari að mennt og starfaði í íslenska dansflokknum í
átta ár. Á síðustu árum hafa Hany og Bryndís
komið saman fram í fjölda sýninga og tekið þátt í mörgum námskeiðum
og tangóhátíðum erlendis bæði í Evrópu og Buenos Aires. Þau hafa tekið þátt
í leikhúsuppfærslum og samið fyrir leikshús. Helstu kennarar þeirra
eru Gustavo Naveira og Giselle Anne og Cecilia Gonzalez. Hany og
Bryndís eru skipuleggjendur tangohátíðar í Reykjavík, TANGO on
ICEland í samstarfi við Kramhúsið.
Hany og Bryndís |