|
>>
Nokkrar leiðbeiningar til að
auðvelda val á námskeiði.
<<
Byrjendur og
nýir dansarar.
Námskeið fyrir þá sem eru að byrja að dansa argentínskan tango og þá
sem hafa
tekið t.d. eitt byrjendanámskeið. Ætlað þeim sem eru að læra
grunnsporin og að tileinka sér að leiða og fylgja.
Intermediate
Ætlað þeim sem hafa sótt nokkur námskeið og dansað
reglulega á milongum og æfingakvöldum í 1-3 ár. Gert er ráð fyrir að
fólk þekki
grunnsporin vel og
hina ýmsu möguleika í göngunni og cruzado, fram og aftur ocho og sé
byrjað að nota grunnsnúninga til hægri og vinstri. Einnig er gert
ráð fyrir að fólk þekki ocho cortado, snúninga með ýmsum breytingum,
sacadas, barridas, ganchos og boleos.
Advanced.
Ætlað vönum dönsurum sem hafa sótt mörg námskeið og stundað milongur reglulega í
3-5 ár. Námskeið fyrir dansara sem þekkja og nota marga möguleika í
samsetningum og taktbreytingum og spinna
auðveldlega á dansgólfinu. Námskeið fyrir dansara sem eru að öðlast flæði í dansinn
og eru að finna sinn eigin stíl. Gert er ráð fyrir að fólk þekki og
geti gert helstu tækniatriði eins og boleos, ganchos, volgadas og
colgadas.
Master class.
Þú ert mjög vanur dansari og hefur dansað og/eða
kennt reglulega í mörg ár. Gert er ráð fyrir að fólk geti
auðveldlega sett saman helstu tækniatriði eins og boleos, ganchos,
volgadas og colgadas. Þetta námskeið hentar þeim sem eru að leita að
nýjum víddum í dansinum og vilja auka skilning á flóknum
samsetningum og eru að þróa sinn persónulega stíl og betri tækni.
Aftur á námskeið
|