Dagskrá

   Kennarar

   Hljómsveitir

   Námskeið

   Skráning/Verð

   Gisting

   Myndir

   English

 

 

 

 

 

Tangófestival, TANGO on ICEland, Reykjavík 1.-4. sept. 2005

>>Kennarar<<

>Chicho & Eugenia

Mariano “Chicho” Frumboli og Eugenia Parilla frá Buenos Aires komu hingað til Íslands í fyrsta sinn á síðustu hátíð. Chicho er einhver allra vinsælasti tangodansarinn núna jafnt í Buenos Aires sem og annars staðar. Þau Eugenia eru mjög eftirsótt á tangóhátíðum og ferðast mikið. Chicho hefur ótrúlega góða tilfinningu fyrir takti og tónlist og er einstaklega hugmyndaríkur og skapandi dansari. Eugenia er ein mest spennandi kvendansari ungu kynslóðarinnar. Sýningar þeirra eru alltaf spunnar á staðnum eftir tónlistinni og þeirri tilfinningu sem þau finna í hverjum dansi.  www.ar8.com.fr/gitango 

>Pablo & Cecilia
 
Cecilia Gonzalez er frá Buenos Aires. Hún er þegar orðin vinsæl á Íslandi og hefur tvívegis verið áður gestur tangóhátíðar í Reykjavík. Hún hefur langa reynslu af tango og verið dansfélagi margra allra bestu karldansara, s.s. Fabian Salas og Chicho. Hún hefur einstaklega fallegan og kvenlegan dansstíl, er mjög fjölhæfur dansari og gefandi og góður kennari.  www.tangomotion.com
 

Pablo Inza er frá Buenos Aires. Hann stundaði nám í sviðslistum og nútímadansi í tveimur af virtustu listaskólum Argentínu. Pablo sneri sér alfarið að tango árið 1991 og er talinn meðal mikilvægu dansara og kennara í nútímatango. Hann hefur einnig starfað  mikið fyrir leikhús og samið dans fyrir leikhúsuppfærslur. Pablo kemur nú í fyrsta sinn til Íslands.

 

 

>Hany & Bryndís

 

Hany Hadaya og Bryndís Halldórsdóttir hafa dansað og kennt og sýnt saman tango síðan 1996. Hany er listdansari að mennt og starfaði í íslenska dansflokknum í átta ár. Á síðustu árum hafa Hany og Bryndís komið saman fram í fjölda sýninga og tekið þátt í mörgum námskeiðum og tangóhátíðum erlendis bæði í Evrópu og Buenos Aires. Þau hafa tekið þátt í leikhúsuppfærslum og samið fyrir leikshús. Helstu kennarar þeirra eru Gustavo Naveira og Giselle Anne og Cecilia Gonzalez. Hany og Bryndís eru skipuleggjendur tangohátíðar í Reykjavík, TANGO on ICEland í samstarfi við Kramhúsið.

Hany og Bryndís


   Tangofélagið

   Styrktaraðilar

   Samstarfsaðilar