Forsíđa

Um félagiđ

Allt um tangó

Námskeiđ/kennarar

Practicas

Milongas

Vantar ţig dansfélaga?

Tenglar 

English

 

Tangófestival 2005


Ný bók um tangó: Ég halla mér ađ ţér og flýg.

 

Tangó er meira en spor; hann er ţađ sem syngur í fólki og ţađ sem bćrist ţess á milli.

„allar leiđir tangófífla liggja suđur og vestur um höf" segir í upphafsljóđi bókarinnar Ég halla mér ađ ţér og flýg – Engin venjuleg ferđasaga, eftir Kristínu Bjarnadóttur. Í nćsta ljóđi lendir ljóđmćlandi í Buenos Aires á brennheitum haustdegi ...

Hnyttin, skemmtileg og raunsönn ferđasaga til tangóborgarinnar Buenos Aires. Myndmáliđ í ljóđunum er eins og tónlist og textinn er tangóspunafllćđi ..." skrifar Bryndís Halldórsdóttir, tangódansari og kennari á bókarkápu. Ţar má líka lesa ummćli skáldkonunnar Lindu Vilhjálmsdóttur: „... sterkur hrynjandi - mikil saga - og mögnuđ undiralda sem vekur upp ţrá og trega í senn."

Kristín hefur áđur birt og flutt texta sína um tangó og hún stóđ m.a. fyrir samnefndri dagskrá í Norrćna húsinu haustiđ 2005 ásamt argentínska bandóneonleikaranum og tónskáldinu Carlos Quilici. Ekkert af ljóđum bókarinnar Ég halla mér ađ ţér og flýg, hefur áđur birst á prenti, en í fyrra kom út smásagan Heimsins besti tangóari á íslensku og spćnsku í sömu bók og var vel tekiđ. (sjá umfjöllun á vef borgarbókasafnsins, www.bokmenntir.is ). Ţetta er ţví önnur bók Kristínar í ritröđ um dans, ţar sem tangóinn er í ađalhlutverki.

Hany Hadaya tangódansari og grafískur hönnuđur, sá um kápuhönnun ađ ţessu sinni, en Birgitta Jónsdóttir listakona og skáld um setningu og umbrot. Bókin er 50 blađsíđur prentuđ í Litróf og útgáfuáriđ er 2007 - ISBN – 978-9979-70-055-5

Bókin kom úr prentun í desember og fćst hjá höfundi á kr. 2000, netfangiđ er kb.lyng@gmail.com. Hún verđur á bođstólnum á fyrstu Milongu ársins, ţriđjudaginn 2.janúar í Iđnó viđ Tjörnina og á milongu á Hótel Borg 18. janúar.

 

Úr dómi í Morgunblađi sunnudaginn 14 janúar 2007, eftir Skafta Ţ. Halldórsson:

 

"Ljóđ Kristínar eru meira og minna lýsingar á dönsum sem ljóđmćlandi dansar viđ hitt og ţetta fólk í Argentínu. En jafnframt mannlífsmyndir sterkar og vel skrifađar. Stíllinn er knappur. Ţannig er forsaga Argentínu skrifuđ í ţremur línum:

 

Í Buenos Aries býr heimsins hvítasta fólk er mér sagt.

Svartir sem ekki fórust í fremstu víglínu flúđu til

Uruguay; indjánar út úr bćnum og upp í fjöll...

 

Nokkurn veginn ţannig byrjađi saga ţessarar ţjóđar sem búiđ hefur viđ svo mikiđ ofbeldi og fasisma í gegnum tíđina. Kristín reynir, ekki ólíkt ţví sem Borges gerđi á sínum tíma, ađ lýsa lífinu á strćtunum, götuhornunum og danssölunum.

/… / Innst inni eru ljóđin ţó ekki síst innra ferđalag um litríkan tilfinningaskala, gleđi og sorg viđ undirleik bandonéon. "


 

Aftur á Allt um tangó