Til baka á forsíðu

 


Fleiri myndir..
Video.

English

Við bjóðum upp á námskeið á öllum stigum, einkatíma og sýningar.
Hafið samband. Netfang: bryndis@tango.is

Um okkur:
Hany og Bryndís eru brautryðjendur tangóhefðar á Íslandi með dyggum stuðningi frá Kramhúsinu og Tangófélaginu. Þau byrjuðu að dansa í kringum 1996 og fyrstu árin var það löngunin til að fá aðra til að stunda með þeim þeirra áhugamál sem hvatti þau áfram. Smám saman hefur tango orðið þeirra atvinna og eftir fyrstu þeirra ferð til Buenos Aires 2003 hefur hann átt hug þeirra allan.
Bæði eiga bakgrunn í klassiskum ballet og Hany starfaði sem atvinnudansari í Íslenska dansflokknum í tæpan áratug.

Hany og Bryndís hafa lært hjá mörgum þekktum kennurum frá Argentínu. Helstir eru Gustavo Naveira og Giselle Anne, Cecilia Gonzalez, Mariano “Chicho” Frumboli og Eugenia Parilla, Damian Essel og Nancy Luzan og fleiri. Þau fengu boð um þátttöku í Special Seminar fyrir kennara og atvinnudansara hjá Gustavo Naveira og Giselle Anne, í Buenos Aires, Argentínu í mars 2003 og hlutu til þess styrk frá Menntamálaráðuneyti. Þau fóru aftur til sömu meistara í Buenos Aires í mars 2005 og 2006.

Bryndís og Hany hafa frá upphafi kennt í Kramhúsinu. Þau hafa einnig verið stundakennarar við Listaháskóla Íslands leiklistadeild frá 2001 og kennt á námskeiðum í ýmsum dansskólum og félögum m.a. í Reykjavík, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og Þórshöfn í Færeyjum. Þau hafa einnig samið og æft dansa fyrir leikhús, s.s. söngleikinn Evítu, Svaninn hjá leikfélaginu Annað svið og Sumaróperuna 2004.

Hany og Bryndís teljast klassískir tangódansarar og byggja kennsluna á klassískum tangó undir áhrifum frá nútíma straumum. Þau leitast við að aðlaga sig að getu nemandanna í hverjum hópi og blanda tækniæfingum og léttum húmor inn í kennsluna. Þau leggja áherslu á til að byggja upp næmni fyrir dansfélaga, bæta tækni, auka tónlistarskilning, flæði í hreyfingum og síðast en ekki síst dansgleði.

Bryndís og Hany kenndu og sýndu á Tango del Norte festival  í Kaupmannahöfn 2006 og 2007, á Påsketango í Sönderborg Danmörku 2008, 2009 og 2010. Þau hafa einnig verið gestakennarar í M2 Tango Studio í Kaupmannahöfn og hjá ýmsum tangóklúbbum í Danmörku.

Bryndís og Hany stofnuðu Tangófélagið ásamt nokkrum áhugasömum dönsurum í apríl 2000. Tangófélagið skipuleggur nú regluleg danskvöld tvisvar í viku, árlegt tangómaraþon og Tangófestival í Reykjavík, TANGO on ICEland.

 

Ferðaplan B & H 2010:

M2 Tango Studio, í K.höfn: workshop og TangoZoo, 29. - 31. janúar 2010

M2 Tango Studio í K.höfn, workshop og TangoZoo, 27. - 29. mars 2010

Påsketango í Sönderborg, 31.mars - 5. apríl 2010

Workshop í Gladsaxe tangoforeningen 16. maí 2010

Åalborg Sommerfest, 12. - 13. júní 2010

Sommer tango festival í Randers Danmörku 12. - 19. júlí, 2010

Fiona tango festival í Svendborg Danmörku, 10.-12. september 2010

Efterårstango í Sönderborg 8.- 15. október 2010

M2 Tango Studio í Kaupmannahöfn, TangoZoo 17. október 2010

 

Hany Hadaya er fæddur í Vínarborg í Austurríki, en hefur verið búsettur á Íslandi síðan 1988, er hann kom til starfa hjá Íslenska dansflokknum. Hann nam klassískan ballet og nútímadans í Hollandi, en áður nam hann arkitektúr í Tækniháskólanum í Vínarborg. Hany lauk prófi í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 1998. Hann hefur starfað á auglýsingarstofum í Reykjavík, en rekur nú sitt eigið hönnunarfyrirtæki H2 hönnun. hany@h2h.is

 

Bryndís Halldórsdóttir er fædd á Íslandi. Hún lagði stund á klassískan ballet í Listdansskóla Þjóðleikhússins frá unga aldri og síðar jazzballet og nútímadans. Bryndís er þroskaþjálfi að mennt og lauk einnig BA prófi í heimspeki og bókmenntum árið 1995. Hún starfar sem sviðsstjóri fræðslu- og mannauðssviðs á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. bryndis@tango.is

 

Nokkrir fyrri viðburðir/sýningar:
TANGO on ICEland festival ágúst 2009
Påsketango Sönderborg apríl 2009
TangoNor á Akureyri febráur 2009
Påsketango Sönderborg apríl 2008
TangoNor á Akureyri febrúar 2008
Tangomaraþon á vetrarhátið í Reykjavík, febrúar 2008.
TANGO on ICEland tango festival, september 2007 Video
Á Hótel Borg með Cuesta Arriba frá Buenos Aires, mars 2007 Video
"Tango del Norte" tangofestival í Kaupmannahöfn, ágúst 2006 og 2007. Video
Á "leikhúsmilongu" í þjóðleikhúskjallaranum í mars 2006.
Á milongnni  "La Vikinga" í Buenos Aires í mars 2006.
Menningarnótt ásamt bandoneonleikaranurm Carlos Quilici og Kristínu Bjarnadóttur ljósskáldi, í ágúst 2005.
Í Iðno ásamt Cuesta Arriba frá Buenos Aires, í apríl 2005
Vetrarhátíð í Reykjavík 2004 og 2005
Tangóhátíð í Reykjavík 2003, 2004 og 2005
Milonga á "La Trastienda" í Buenos Aires í mars 2003
Menningarnótt í Reykjavík, 2002, 2003, 2004, 2005 og 2006.
Jólasýningu Kramhússins á hverju ári 1996-2010
Bjartar nætur Óperustúdíó Austurlands, í júní 2000
Með hljómsveitinni Le Grand Tango, í Iðnó í ágúst 1998
Söngleiknum Evita, í Íslensku Óperunni 1997
Með hljómsveitinni Le Grand Tango, á Listahátíð í Reykjavík 1996

 

 

Aftur á námskeið...