Að læra tangó
Helgarnámskeið 17. - 19. febrúar
Bryndís og Hany koma og kenna í Kramhúsinu 17. - 19. febrúar. Þessir frábæru kennarar eru nú búsettir í Kaupmannahöfn, þar sem þau kenna tangó við miklar vinsældir.
Námskeið fyrir byrjendur verður föstudag kl 20 - 21.15 og sunnudag 13 - 14.15. Stutt námskeið sem gefur samt góða innsýn í grunnatriði tangósins. Verð kr 7.000 pr mann, 14.000 fyrir parið.
Tímar fyrir lengra komna eru á laugardag og sunnudag. Tímatafla hér.
Kynningartímar
Í vetur verður boðið upp á kynningartíma fyrir þá sem vilja prófa tangó kl 20 – 21 á miðvikudögum í Kaffitári í Bankastræti. Ekki er nauðsynlegt að koma með dansfélaga í kynningartíma. Verð kr 500.
Ný námskeið í Kramhúsinu í janúar 2012
Tangónámskeið fyrir byrjendur og lengra komna hefjast í Kramhúsinu 10. janúar 2012. Kennarar eru Guðbjörg Eysteinsdóttir og Þórður Steingrímsson. Upplýsingar og skráning fer fram í Kramhúsinu, sími 5515103.
Vantar þig dansfélaga?
Almenna reglan er sú að fólk skráir sig með dansfélaga á námskeiðin. Ef þig vantar félaga getur þú komið í kynningartímana á Kaffitári og athugað hvort þar leynist dansfélagi við hæfi.






