Skip to Content

Tangófélagið

Tangófélagið var stofnað í apríl árið 2000 af nokkrum áhugasömum dönsurum, með það markmið að efla argentínskan tangó á Íslandi. Félagið stendur fyrir milonga (tangódanskvöld) á Kaffitári í Bankastræti öll miðvikudagskvöld og Milonga El Cramo í Kramhúsinu á föstudagskvöldum. Stærstu árlegir viðburðir á vegum félagsins eru tangómaraþonið Open embrace í febrúar/mars og alþjóðlega tangóhátíðin Tango on Iceland sem haldin er í ágúst.

Allt starf í þágu félagsins er unnið í sjálfboðavinnu og örlæti og dugnaður fjölmargra félagsmanna gera félaginu kleift að halda uppi öflugri starfsemi árið um kring. Tekjur af félagsgjöldum og milongum eru notaðar til að borga húsaleigu fyrir milongur félagsins og greiða niður stærri viðburði á borð við tangóhátíð og tangómaraþon. Í stjórn eru Ólöf Ingólfsdóttir formaður, Kristinn Jónsson gjaldkeri, Þórður Steingrímsson og Jóhanna Reynisdóttir.


Má bjóða þér að ganga í félagið?
Félagsmenn Tangófélagsins fá 10% afslátt af framhaldsnámskeiðum í Kramhúsinu og 50% afslátt á milongur í Kramhúsinu, auk sérstakra vildarkjara á TANGO on ICEland. Til að ganga í félagið getur þú skráð þig hér: Skráning í Tangófélagið

Til að skráningin sé gild þarftu að greiða 3.000 kr. árgjald inn á bankareikning félagsins: 303-26-2215, kt. 480500-3180. Starfsárið er frá júní til maí. Vinsamlegast sendu síðan upplýsingar um greiðsluna á netfangið tnews@tango.is.


Viltu fá upplýsingar um námskeið og viðburði?
Tilkynningar og fréttir frá Tangófélaginu eru sendar til þeirra sem eru á póstlistanum, ekki er skilyrði að vera í félaginu. Til að komast á listann getur þú skráð þig hér:  Skráning á póstlista Tangófélagsins


Starfsreglur félagsins



Drupal vefsíða: Emstrur