Bryndís og Hany sýna á El Cramo
Tungumál:
Íslenska
Bryndís og Hany eru gestir Tangófélagsins 17 - 19 febrúar. Þau verða með námskeið um helgina en munu auk þess prýða El Cramo á föstudaginn með nærveru sinni. Bryndís verður DJ kvöldsins og Bryndís og Hany verða með sýningu. Það er mikið tilhlökkunarefni að sjá þessa meistara dansa. Hér má fá smá forskot á sæluna, því þetta myndband sýnir Bryndísi og Hany dansa í Randers í Danmörku milli jóla og nýárs. Aðgangur á El Cramo er kr 500 fyrir félagsmenn, annars 1.000.






