Skip to Content

Gott að vita

Milonga eða practica - hver er munurinn?

Milonga er alþjóðlegt heiti fyrir stað þar sem fólk kemur til að dansa tangó. Á milongu er tónlistin spiluð í 3-4 laga syrpum, sem kallast tanda. Í hverri töndu eru lög svipaðs eðlis. Þannig getur ein tanda verið í hröðum tangótakti og sú næsta í rólegum, en einnig eru spilaðar töndur í vals- og milongatakti. Þegar töndu lýkur er spilað millistef, cortina. Þá fara pörin af dansgólfinu og tækifæri gefst til að bjóða upp á nýjan leik. Á milongum er annað hvort tangó-diskótekari eða hljómsveit.

Practica er í eðli sínu óformlegri en milonga, enda er þar fyrst og fremst um að ræða tækifæri fyrir fólk að æfa sig. Tónlistin er spiluð án millistefja og fólki er velkomið að staldra við þegar því hentar, prófa sig áfram og spjalla um sporin sem það er að æfa. Stundum er boðið upp á practica með leiðsögn eða stuttri kennslustund í upphafi.

 

Tangóskór

Miklu skiptir að velja sér skó við hæfi til að njóta dansins sem best. Tangóskór eru yfirleitt með leður- eða rússskinnssóla. Leðursóli er heldur sleipari en rússskinnssóli, en það getur verið misjafnt hvað fólki líkar best.

Herraskór eru yfirleitt reimaðir og með 2-4 sentímetra hæl. Mörgum finnst ágætt að dansa á liprum æfingaskóm með sléttum botni.

Dömuskór þurfa að falla vel að fætinum og eru því nær undantekningarlaust með bandi yfir ristina. Hællinn getur verið 4-10 sentímetrar, en algengast er 7-8 sentímetra hæll. Sumum fellur þó best að dansa á flötum botni og margar konur eiga æfingaskó sem henta vel fyrir dans, þannig að þær geti hvílt sig á hælunum öðru hvoru.

Engin verslun býður tangóskó til sölu hérlendis, en skór fyrir samkvæmisdans fást í versluninni Ástund, Háaleitisbraut 68 og í Dansskóla Jóns Péturs og Köru, Valsheimilinu Hlíðarenda. Einnig hefur Rut Ríkey Tryggvadóttir verið með tangóskó frá La Vikinga til sölu. Best er að hafa samband beint við hana í síma 8216929.

Vefverslanir með tangóskó:
Comme il faut
Lisadore
Neotango
Tango republic
El Zapatito
Robin Tara shoes
Tangazos

 

Tangófatnaður

Fyrir þá sem hafa áhuga á fallegum og þægilegum fatnaði til að dansa í bendum við á eftirfarandi aðila: 
Laura Valentino hannar þægilegan dansfatnað fyrir konur og karla úr vönduðum og umhverfisvænum efnum undir merkinu Knús: knusdesign.com
Ute Prause er hönnuður í Barcelona, sem m.a. hannar tangófatnað: http://www.uteprause.com

 

Tangótónlist

Við val á góðri danstónlist er gott að þekkja nöfn: Klassískur tangó: Carlos Di Sarli, Rodolfo Biagi, Edgardo Donato, Enrique Rodriguez, Juan D'Arienzo, Alfredo D’Angelis, Miguel Caló, Francisco Canaro, Julio De Caro, Pedro Laurenz, Angel D'Agostino, Angel Vargas, Florindo Sassone, Anibal Troilo, Osvaldo Pugliese.
Nútímahljómsveitir: El Arranque, Color tango, Los Reyes de Tango, Silencio.
Elektrónískur tangó: Narcotango, Ultratango, Bajofondo, Gotan project.
Astor Piazzolla var bandoneonleikari, útsetjari og tónskáld, frábær tónlist til að hlusta á, en ekki mjög dansvæn tónlist.

Vefverslanir með tónlist:


www.tangostore.com
www.tangoberlin.de/CD.html
www.dym.de

Hljómsveitir:
Silencio
Los Reyes del Tango
Color tango
El Arranque
Gotan project
Bajofondo
Tango Extremo
Tangarte

 

Tímarit um tangó

El tangauta
Farolito

 

Tangó á Íslandi

Tangófélagið: www.tango.is
Tangóævintýrafélagið: www.tangoadventure.com

 

Tangó í Buenos Aires

www.todotango.com
www.tangodata.com.ar
www.saboratango.com.ar

 

Tangó um víða veröld

Danmörk: www.tango.dk og www.gotan.dk
Lund og Malmö í Svíþjóð: www.tangokompaniet.com
Gautaborg og nágrenni í Svíþjóð: http://tangogbg.se
Oslo í Noregi: http://tangoskolen.no/
Bergen í Noregi: http://bergentango.no/
Frakkland: tango-argentin.fr
Berlín: www.tangoberlin.de
Ástralíu: www.patiodetango.com.au/0.htm
Alþjóðleg síða frá Þýskalandi: www.cyber-tango.com
Alþjóðleg síða frá Hollandi:  www.torito.nl
Milongur um allan heim: milongas-in.com

 

 

 



Drupal vefsíða: Emstrur