Forsíða

Um félagið

Allt um tangó

Námskeið/kennarar

Practicas

Milongas

Vantar þig dansfélaga?

Tenglar 

English

 

Tangófestival 2008

Milonga - tangókvöld

Milonga er alþjóðlegt heiti fyrir stað þar sem fólk kemur til að dansa tangó. Á milongu eru spilaðar 3-4 laga syrpur eða töndur, ýmist í tangó-, vals- eða milongatakti. Eftir hverja töndu er boðið upp að nýju. Á milongum er annað hvort tangó-diskótekari eða hljómsveit.


>> Milonga á Kaffitári <<

Milonga alla miðvikudaga á Kaffitári í Bankastræti 8


Kynningartími kl 20.00-20.45 fyrir þá sem langar til að byrja að dansa tangó

Opið dansgólf kl. 20.45-23.00

Hvert kvöld bjóðum við upp á frábæra DJ-a.

Aðgangseyrir 500 kr.

Umsjón: Tangófélagið

 


View milongas and practicas in Reykjavík in a larger map 

Ekta tangóstemning í notalegu umhverfi.

 

 


 

>> Fyrri viðburðir:

 

MILONGA á Hótel Borg - Gyllta sal.

sjá meira.....

 


>> MILONGA í Iðnó

 

     sjá dagskrá.....

 



 

Tangósveit lýðveldisins spilaði mánaðarlega í Iðnó frá 2003 - 2006. Sveitin hefur tekið sér frí í bili og á meðan sjá tangó-diskótekarar um að velja tónlist af diskum og skapa ekta milonga-stemmningu eins og í Buenos Aires.

Tangósveit lýðveldisins skipuðu: Hjörleifur Valsson, fiðla, Tatu Kantomaa, bandoneon, Ástráður Traustason, harmonikka, Gunnlaugur T. Stefánsson, bassi og Vignir Þór Stefánsson, píanó.

Tangósveitin spilar tangóa og valsa frá ýmsum löndum, s.s. Argentínu, Finnlandi og Mið-Evrópu.

 


>Leikhúsmilongan<

 

 

Milonga í Þjóðleikhúskjallaranum
laugardagskvöldið 10. júní, kl. 22-02

Aðgangseyrir: 500 kr
DJ: Þórður

Opinn bar - frábært stórt dansgólf.

 

Leikhúsmilongan opnaði í fyrsta sinn í nóvember 2005 og varð strax mjög vinsæl. Þar er leikin dansvæn tangótónlist sem er hæfileg blanda af gömlu meisturunum og nýjum hljómsveitum og jafnvel nútímatangótónlist. Leiknar eru töndur, 3-4 laga syrpur, aðgreindar stuttu millilagi, cortinu, en þá fara allir af gólfinu - og bjóða nýjum dansfélaga upp fyrir næstu töndu.

Allir eru velkomnir og nýir tangódansarar og gestir þeirra eru sérstaklega hvattir til að koma og upplifa alvöru milonga að argentínskum hætti.


 

Fyrri milongur í Þjóðleikhúskjallaranum:

29. apríl 2006

Tapashlaðborð í boði frá kl. 20. 

Opinn byrjendatími kl 21: Umsjón: Kathrin Maria Schmucker

Milonga kl. 22 - 02:  DJ Tangomaster BH

Sýning: Damián og Nancy frá Buenos Aires.

Damián og Nancy hafa kennt og sýnt argentínskan tango á mörgum þekktustu tangóstöðum og  tangóhátíðunum bæði í Buenos Aires í Argentínu og víða í Evrópu, m.a. í Svíþjóð, Grikklandi, Þýskalandi, Írlandi, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Israel, Austurríki, Hollandi, Ítalíu og Japan.  Þau koma nú í fyrsta sinn til Íslands og halda helgarnámskeið í Kramhúsinu 28. -30. apríl.  Meira... Damián og Nancy.

Aðgangseyrir 1000 kr, 500 kr. fyrir námsmenn.
 

18. mars 2006

Opinn tími fyrir byrjendur kl. 21: Kathrin Maria Schmucker

Milonga kl. 22 - 02: DJ: Daði

Sýning: Hany og Bryndís

Hany og Bryndís sýndu á leikhúsmilongunni 18 mars, en þau voru þá nýkomin heim frá höfuðborg tangósins, Buenos Aires í Argentínu. Þau kenna tango reglulega í Kramhúsinu. Meira... Hany og Bryndís

 

 

> Opnunarkvöldið 19. nóvember - myndir<


 

Tangó á menningarnótt, 20. ágúst 2005...


Milonga í Iðnó 16. apríl 2005:
Cuesta Arriba frá Buenos Aires, sýning Bryndís og Hany