Forsíða

Um félagið

Allt um tangó

Námskeið/kennarar

Practicas

Milongas

Vantar þig dansfélaga?

Tenglar 

English

 

Tangófestival 2006

Milongas -  tangókvöld                                     Staðarkort:

Milonga er alþjóðlegt heiti fyrir stað þar sem fólk kemur til að dansa tangó. Á milongu eru spilaðar 3-4 laga syrpur eða töndur, ýmist í tangó-, vals- eða milongatakti. Eftir hverja töndiu er boðið upp að nýju. Á milongum er annað hvort tangó-diskótekari eða hljómsveit.


>> Tangókvöld í Iðnó <<

MILONGA - í Iðnó við Tjörnina!

 

>> Tangomaraþon á Vetrarhátíð í Reykjavík <<

í Iðnó 9. - 10. febrúar

 


 

Fögnum nýju tangóári !!!

 í Iðnó föstudagskvöldið 4. janúar kl 21-01. DJ Laura

Boðið upp á freyðivínsglas, tombólu og nýárs-chacarera 

Aðgangseyrir 1.000 kr.

 


 

Laugardagskvöldið 17. nóv. kl 21-01

Sérstakir gestir:

Silencio Tangoquartet frá Argentínu/Uruguay

 


S
ilencio
tangokvartett leikur á tónleikum og milongu í Iðnó laugardagskvöldið 17. nóvember. Tangóhljómsveitin Silencio var stofnuð í Evrópu árið 2001. Á aðeins örfáum árum var þeim boðið að spila á öllum helstu tangóhátíðum í Evrópu og urðu fljótt ein eftirsóttasta og vinsælasta tangóhljómsveit álfunnar. Í fyrstu unnu þau með Alfredo Marcucci, bandoneonleikara frá Buenos Aires í Argentínu sem veitti þeim innblástur og endurspeglun inn í tónlist gömlu meistaranna í Buenos Aires frá 5. og 6. áratug síðustu aldar.

Silencio er “orquesta tipica” eða hefðbundin tangóhljómsveit sem byggir á upprunalegri tangótónlist með þeim einkennandi krafti og einstaka hljómi. Silencio hefur vakið athygli fyrir frábæran tónlistarflutning, einstaklega dynamíska og dansvæna tónlist og skemmtilega sviðsframkomu.

Meðlimir sveitarinnar eru frá Argentínu, Uruguay, Þýskalandi og Ítalíu. Þeir hafa þegar gefið út einn disk og er annar væntanlegur. Silenicio tangokvartett spiluðu á TANGO on ICEland - tangofestival 2005, við frábærar undirtektir.

Tangófélagið stendur fyrir komu þeirra hingað til lands. Kvöldið hefst með tónleikum sveitarinnar, en síðan munu þeir leika áfram fyrir dansi fram eftir kvöldi. Tango DJ í hléum.

Húsið opnar kl. 21  Aðgangseyrir er 1.500 kr.

www.tangosilencio.com


 

Laugardagskvöldið 13. október
 

Húsið opnar kl 22.30. Tónlist af diskum - DJ. Dansað til kl 02.

Sýning frá Buenos Aires: Cecilia Gonzalez og Donato Juarez,
Blas Rivera leikur á saxofon.

Aðgangseyrir 1.500 kr.

Aðgangseyrir er innifalinn í helgarnámskeiði í Kramhúsinu 11.-14. okt. með Ceciliu og Donato.

Til baka